Akureyrarvöku aflýst í ár

Akureyrarvöku aflýst í ár

Akureyrarbær hefur ákveðið að aflýsa Akureyrarvöku að þessu sinni en hún var fyrirhuguð á afmæli bæjarins þann 29. ágúst. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Þar segir að ákvörðunin hafi verið tekin til að sýna ábyrgð í verki, bregðast við tilmælum sóttvarnalæknis og þróun Covid-19 faraldursins í samfélaginu.

„Þetta þýðir að allir stærri og minni viðburðir sem fyrirhugaðir voru falla niður. Það er Akureyrarstofa sem annast skipulag Akureyrarvöku og þar á bæ er unnið að því að minnast afmælis bæjarins með uppákomum sem taka fullt tillit til fjöldatakmarkana og fjarlægðarmarka. Stefnt er að því meðal annars að lýsa upp svæði og byggingar í bænum, gangandi og akandi bæjarbúum og gestum til yndisauka. Þannig verður Lystigarðurinn lýstur upp og skreyttur eins og undanfarin ár og áætlað að ljósin fái að lifa þar út septembermánuð,“ segir á vef bæjarins.

Nánari upplýsingar um það og annað sem gert verður til hátíðarbrigða verða sendar út þegar nær dregur afmælinu.


UMMÆLI