Aldís Ásta framlengir við KA/Þór

Aldís Ásta framlengir við KA/Þór

Aldís Ásta Heimisdóttir framlengdi í gær samning sinn við handboltalið KA/Þór til tveggja ára. Aldís sem er uppalin hjá KA/Þór er algjör lykilmaður í liðinu hvort sem er í sókn eða vörn. Hún lék sína fyrstu A-landsleiki fyrir Íslands hönd í vetur og gerði sín fyrstu landsliðsmörk í leik gegn Sviss.

Aldís sem verður 23 ára gömul í dag steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki en það var tímabilið 2014-2015 og er hún því þrátt fyrir ungan aldur komin með þó nokkra reynslu. Hún hefur nú leikið 158 leiki fyrir KA/Þór.

Aldís hefur einnig leikið ófáa leiki fyrir unglingalandslið Íslands og lék meðal annars á HM í Ungverjalandi með U20 ára landsliðinu sumarið 2018. Árið 2016 hlaut Aldís Böggubikarinn en hann er veittur ungum iðkanda hjá KA sem skarar framúr bæði innan sem utan vallar.

„Það er gríðarlega jákvætt að halda Aldísi áfram innan okkar raða og klárt að það er áfram bjart framundan hjá liði KA/Þórs. Stelpurnar mæta Val í lokaumferð Olísdeildarinnar á Hlíðarenda í dag og kemur þá í ljós hvort stelpurnar enda í 2. eða 3. sæti deildarinnar, í kjölfarið hefst svo úrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn þar sem stelpurnar hafa titil að verja,“ segir í tilkynningu á vef KA.

UMMÆLI