Alexander Már til Þórsara

Alexander Már til Þórsara

Knattspyrnumaðurinn Alexander Már Þorláksson mun ganga í raðir knattspyrnuliðs Þórs þegar félagaskiptaglugginn opnar 29. júní næstkomandi. Alexander er sonur Þorláks Árnasonar, þjálfara Þórsliðsins.

Alexander getur spilað sinn fyrsta leik fyrir Þór þegar Þróttur Vogum mætir í heimsókn á SaltPay völlinn 30.júní. Alexander skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Alexander er mikill markaskorari og hefur spilað með Fram í sumar í Bestu deildinni og síðustu 2 ár þar á undan í Lengjudeildinni. Hann hefur komið víða við á ferlinum og leikið meðal annars með KF, ÍA, Fram og Hetti. Hann hefur skorað 122 mörk í 202 leikjum á ferlinum í leikjum á vegum KSÍ

UMMÆLI

Sambíó