„Allur fiskiheimurinn hittist á sama punktinum“

„Allur fiskiheimurinn hittist á sama punktinum“

Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global í Barcelona á Spáni stendur yfir dagana 6.- 8. maí. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða.

Samherji og Ice Fresh Seafood eru að venju með stóran bás á sýningunni, þar sem tekið er á móti gestum frá öllum heimshlutum og afurðir kynntar. Ice Fresh Seafood er dótturfélag Samherja og sér um að selja afurðir félagsins og fleiri fyrirtækja.

Jóhannes Már Jóhannesson sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood hefur starfað í nærri fjóra áratugi við að selja íslenskar sjávarafurðir og hefur því sótt fjöldan allan af slíkum sýningum. Hann hefur starfað í 15 ár hjá Samherja og Ice Fresh Seafood við sölu sjávarafurða.

Jóhannes lýsir sjávarútvegssýningunni í Barcelona sem gríðarlega stórri og vel heppnaðri en þetta er hans 33. sýning. Hann telur Barcelona henta betur en Brussel fyrir viðburðinn. Á bás fyrirtækisins er stöðugur straumur gesta og fundir bókaðir frá morgni til kvölds, sem gerir dagana annasama en ánægjulega og gefandi.

Jóhannes Már leggur áherslu á mikilvægi persónulegra samskipta til að viðhalda og byggja upp ný viðskiptasambönd, þrátt fyrir tæknivæðinguna. Hann bendir á að þótt íslenskur fiskur sé þekktur fyrir gæði og ferskleika, sé samkeppnin hörð og fagleg vinnubrögð í veiðum, vinnslu og sölu skipti sköpum. Bás Samherja og Ice Fresh Seafood er þekktur fyrir framúrskarandi veitingar úr fersku íslensku hráefni, matreiddar af Einari Geirssyni á Rub23 sem hefur fylgt þeim í um tvo áratugi.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni á vef Samherja.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó