Amtsbókasafnið leitar eftir aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi

Amtsbókasafnið leitar eftir aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi

Amtsbókasafnið á Akureyri leitar nú eftir aðila eða aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi á fyrstu hæð bókasafnsins í Brekkugötu 17. Kaffihúsið er sjálfstæð eining en jafnframt mikilvægur hluti af bókasafninu samkvæmt tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Serena Pedrana hefur rekið kaffihúsið Orðakaffi í Amtsbókasafninu síðan árið 2016 en hún tilkynnti fyrr í sumar að hún myndi loka kaffihúsinu 29. júlí 2022.

Sjá einnig: Serena hættir með Orðakaffi

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 24.08.2022 og skal tilboðum skilað rafrænt á útboðsvefnum fyrir kl. 13:00 14.09.2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg hérna og afhendast sjálfvirkt á síðasta skrefinu.

Nánari upplýsingar um framkvæmd útboðsins eða útboðsgögn er hægt að fá með því að hafa samband í gegnum tölvupóstinn umsarekstur@akureyri.is. Nánari upplýsingar um starfsemina veitir Hólmkell Hreinsson forstöðumaður Amtsbókasafnsins holmkell@amtsbok.is og í síma 4601253 og 8626882

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó