Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum settir í kvöld

Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum settir í kvöld

Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir í 44. skipti af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 24.-27. apríl 2019

Andrésarleikarnir eru eitt stærsta skíðamót landsins með um 1000 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2500-3000 manns sæki leikana.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.

Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Nú er í annað skipti sem 4 ára börnum er boðið að taka þátt í leikunum og mæltist það vel fyrir í fyrra. Þessi börn taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og skemmta sér, en ekki að sigra. Andrésarleikarnir eru fjölskylduhátíð skíðamanna og því hefur oft verið óskað eftir því að yngri systkini fái að taka þátt. Með þessu er verið að koma til móts við þá ósk.

Eftir risjóttan skíðavetur um allt land eru aðstæður í Hlíðarfjalli nú með ágætu móti þó snjór sé ekki mikill. Búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár. Þátttaka er með allra mesta móti í sögu leikanna, en nú þegar hafa 937 börn verið skráð frá 17 félögum á Íslandi, en einnig er búist við nokkrum gestum frá Noregi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í SKA (Skíðafélag Akureyrar) eða 148 keppendur.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudagskvöldið 24. apríl að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá íþróttasvæði KA. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í lok hvers keppnisdags.

UMMÆLI

Sambíó