Anna Rakel, Martha og Ævarr tilnefnd sem íþróttafólk KA

Þrír einstaklingar hafa verið tilnefndir til íþróttafólks KA fyrir árið 2017. Blakdeild félagsins, knattspyrnudeild og handknattleiksdeild tilnefna einstaklinga.

Úr blakdeild er Ævarr Freyr Birgisson tilnefndur. Í tilnefningu frá blakdeildinni segir:

Ævarr spilaði stórt hlutverk í blakliði KA á síðasta ári og hefur ávallt verið til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan. Ævarr er fyrirliði meistaraflokks karla sem hefur byrjað þetta tímabil mjög vel og er í baráttu um toppsætið í Mizunadeildinni. Ævarr er góður alhliða leikmaður og er liðinu afar mikilvægur bæði í vörn og sókn. Í sumar var Ævarr valinn í landslið Íslands í blaki sem tók þátt í Evrópumótinu þar sem Ísland spilaði við nokkrar af sterkustu blakþjóðum heimsins. Þar átti Ævarr góða leiki og öðlaðist gríðarlega reynslu í baráttu við bestu blakmenn álfunnar.

Martha Hermannsdóttir er tilnefnd úr handknattleiksdeild. Í tilnefningunni segir:

Martha Hermannsdóttir er 34 ára gömul handknattleikskona og algjör burðarás í liði KA/Þórs. Martha leikur sem leikstjórnandi eða skytta hjá KA/Þór sem leikur í 1. deild kvenna í handbolta. Á síðustu leiktíð lenti KA/Þór í 2.sæti í 1.deild kvenna og töpuðu fyrir Selfoss í umspili um laust sæti í úrvalsdeild. Martha varð lang markahæsti leikmaður KA/Þór á síðasta keppnistímabili með 179 mörk og varð önnur markahæst í deildinni. Hún var auk þess valin leikmaður ársins í 1.deild á síðasta tímabili og kom það engum á óvart enda yfirburðaleikmaður síðasta keppnistímabil.Sem stendur er KA/Þór efst í fyrstu deildinni og hafa unnið alla sína leiki. Martha er gríðarlega góð fyrirmynd innan sem utan vallar. Hún sýnir mikla leiðtogahæfni og er alltaf jákvæð og brosandi inn á vellinum. Hún er yngri leikmönnum liðsins gríðarlega mikilvæg enda með mikla reynslu sem þær læra af. Martha hefur áður verið tilnefnd af handknattleiksdeild, fyrst árið 2014 og varð hún hlutskörpust það árið í kjörinu. Martha er frábær kandídat sem íþróttamaður KA árið 2017.

Knattspyrnudeild tilnefnir Önnu Rakel Pétursdóttir.

Anna Rakel Pétursdóttir er fædd 24. ágúst 1998. Hún hefur æft fótbolta með KA frá því hún var 4 ára. Í yngriflokkum félagsins var hún afgerandi leikmaður í liði sem stóð sig vel á landsvísu. Anna Rakel hefur verið yngri iðkendum góð fyrirmynd en hún hefur síðustu fjögur ár verið í þjálfarateymi yngriflokka KA í knattspyrnu. Hennar helstu styrkleikar eru að hún hefur mikið keppnisskap, góða tækni og frábærar spyrnur. Anna Rakel hefur alla tíð lagt hart að sér til að ná sem lengst og það skilaði sér í því að einungis 15 ára spilaði hún sinn fyrsta leik í Pepsideildinni. Anna Rakel var ein af lykilmönnum í Íslandsmeistaraliði Þór/KA á árinu. Anna Rakel spilaði alla leiki liðsins sem vinstri vængbakvörður í leikkerfinu 3-4-3. Frammistaða hennar í þeirri stöðu gerði það að verkum að hún var í liði ársins bæði á Fotbolti.net og 433.is. Anna Rakel spilaði á árinu fimm landsleiki með U19 ára liði Íslands en alls á hún að baki 24 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Anna Rakel er byrjuð að banka á dyrnar hjá Alandsliðinu og var hún í fyrsta sinn valin í 20 manna landsliðshóp nú í haust í fyrsta leik Íslands í undakeppni HM. Anna Rakel hefur verið samningsbundin leikmaður KA frá því í ársbyrjun 2015. Anna Rakel er mikill KA-maður, góður liðsmaður og öflugur íþróttamaður sem átti frábært ár og er því vel að því komin að vera kandidat fyrir hönd knattspyrnudeildar í vali á Íþróttamanni KA 2017.

 

Martha Hermannsdóttir

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó