Anna Rakel til æfinga í Svíþjóð

Anna Rakel. Mynd: Sævar Geir

Anna Rakel Pétursdóttir leikmaður Íslandsmeistaraliðs Þórs/KA hefur fengið boð um að koma til æfinga hjá úrvalsdeildarliði Göteborg FC í Svíþjóð.

Anna Rakel var frábær í liði Þór/KA í sumar sem vann Íslandsmeistaratitilinn eftirminnilega. Þetta hefur verið frábært sumar fyrir Önnu en hún var á dögunum valin í A-landsliðshóp Íslenska landsliðsins í fyrsta skipti.

Göteborg varð sænskur bikarmeistari 2011 og 2012 og þá komst liðið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu árin 2012 og 2013. Við óskum Önnu Rakel góðs gengis á æfingunum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó