Anna Soffía júdókona ársins – Alexander efnilegastur

Anna Soffía og Alexander

Anna Soffía Víkingsdóttir úr KA var valin júdókona ársins á uppskeruhátið Júdósambands Íslands sem fór fram í vikunni í húsakynnum ÍSÍ. Þá var Alexander Heiðarsson valin efnilegasti júdómaður Íslands.

Hans Rúnar Snorrason fékk heiðurgráðuna 2. dan og dómari ársins var valin Jón Kristinn Sigurðsson. Edda Ósk Tómasdóttir fékk bronsmerki  JSÍ  fyrir störf í þágu júdó.

Við óskum þessum KA konum og mönnum innilega til hamingju.

Sambíó

UMMÆLI