Arctir Mayors samstarf formfest á Akureyri

Arctir Mayors samstarf formfest á Akureyri

Þann 10. október næstkomandi hittast fulltrúar nokkurra af nyrstu byggðum heims og undirrita stofnskjal um formlega samvinnu undir yfirskriftinni Arctic Mayors. Þannig verður vettvangur bæjar- og borgarstjóra á norðurslóðum loks formfestur. Markmiðið með þessum vettvangi er að ljá sveitarstjórnum á norðurslóðum, og þar með íbúum, rödd í framtíðarþróun svæðisins. 

Stofnskjalið verður undirritað í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fimmtudaginn 10. október 2019 kl. 10:00. Klukkan 13 hefst svo fundur undir yfirskriftinni „sjálfbær ferðaþjónusta“. Þar flytja erindi Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Annika Olsen, borgarstjóri Þórshafnar, Þórný Barðadóttir, frá rannsóknamiðstöð ferðamála og Kristin Røymo, borgarstjóri í Tromsø.

Nánar um Arctic Mayors: 

Í núverandi stjórnskipulagi á norðurslóðum er ekki gert ráð fyrir kerfisbundinni aðkomu nærsamfélaga að mótun stefnu um svæðið. Þar af leiðandi eru ákvarðanir oft teknar í órafjarlægð. 

Bæjar- og borgarstjórar innan norðurslóða sjá ástæðu og þörf fyrir skipulagðan samstarfsvettvang í því skyni að standa vörð um hagsmuni íbúa. Samfélög í norðri standa mörg hver frammi fyrir sameiginlegum áskorunum og geta notið góðs af norrænni samvinnu á sveitarstjórnarstigi. 

Leiðarstefið á vettvangi Arctic Mayors er að leiðtogar svæðanna eigi aðild að öllum stigum stefnumótunar og ákvarðanatöku. Þannig verði tryggt að gildi, markmið og hagsmunir fólksins séu í forgrunni, svo unnt sé að bæta lífsgæði þeirra sem búa á norðurslóðum, styðja við sjálfbæra þróun og þróttmikil samfélög. 

Þessu markmiði verður náð með skipulögðum samstarfsvettvangi og þekkingarmiðlun bæjar- og borgarstjóra sem og innlendra, svæðisbundinna og alþjóðlegra stofnana. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó