Árlegt uppgjör Vandræðaskálda slær í gegnVandræðaskáldin Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir.

Árlegt uppgjör Vandræðaskálda slær í gegn

Þriðja árið í röð hefur gríndúettinn Vandræðaskáld, sem samanstendur af þeim Vilhjálmi B. Bragasyni og Sesselíu Ólafsdóttur, sent frá sér nýárskveðju þar sem þau draga fram það sem hæst bar á árinu sem var að líða með húmorinn að vopni. Samtals eru kveðjurnar þrjár með tæplega 250 þúsund áhorf og því ljóst að svona grín á upp á pallborðið hjá þjóðinni.

Í laginu koma þau inn á Klaustursmálið, kjaradeilu ljósmæðra, barnabók Birgittu Haukdal og hugsanlega klónun Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum forseta Íslands meðal annars. Útkoman er mjög skemmtileg og var frumflutt í áramótaþætti þeirra Vandræðaskálda á Rás 1 í gær. Í áramótaþættinum léku Vandræðaskáld á alls oddi með hárbeittri þjóðfélagsádeilu og upprifjun ársins í tali og tónum. Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni inn á Rúv Sarpinum með því að ýta hér. 

 

 

UMMÆLI