Ásdís og Rut í landsliðshóp

Ásdís og Rut í landsliðshóp

Handboltakonurnar Ásdís Guðmundsdóttir og Rut Arnfjörð Jónsdóttir úr KA/Þór eru í æfingahóp A-landsliðsins sem mun æfa á höfuðborgarsvæðinu 17.-21. febrúar næstkomandi. Arnar Pétursson þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta valdi 19 leikmenn í æfingahóp.

Rut og Ásdís hafa báðar verið frábærar með KA/Þór í vetur en liðið er sem stendur á toppi Olísdeildar kvenna. Ásdís hefur áður leikið tvo landsleiki með B-landsliði Íslands gegn Færeyjum og fær nú stóra tækifærið. Rut er hinsvegar næstreynslumest í hópnum með 94 landsleiki.

Næsta verkefni landsliðsins er undankeppni HM þar en þá leikur Ísland gegn Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi. Riðillinn verður leikinn í Norður-Makedóníu dagana 19.-21. mars.

Mynd: Ka.is

UMMÆLI

Sambíó