Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta

Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta

Prentsmiðjan Ásprent Stíll á Akureyri verið tekin til gjaldþrotaskipta og fékk starfsfólk ekki greitt út laun núna um mánaðarmótin. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins í dag.

Þar segir að rekstur félagsins hafi verið þungur síðustu misseri og áhrif COVID-19 faraldursins hafi haft afgerandi neikvæð áhrif.

Tilraunir til fjárhagslegrar endurskipulagningar með viðskiptabanka félagsins tókust ekki. Skiptastjóri verður skipaður yfir eignum fyrirtækisins og starfsemin heldur áfram í sömu mynd þannig til annað verður ákveðið.

Á vef Vikublaðsins er tekið sérstaklega fram að Vikublaðið, Dagskráin og Skráin, sem  Útgfáfufélagið gefur út og prentuð eru í Ásprent, munu koma út áfram og hefur gjaldþrot Ásprents ekki áhrif á útgáfu þessara miðla.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó