Ásta Dís Óladóttir í stjórn Samherja

Ásta Dís Óladóttir í stjórn Samherja

Ásta Dís Óladóttir hefur tekið sæti í stjórn Samherja hf. í stað Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur, sem setið hefur í stjórn félagsins um árabil og gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Ásta Dís hefur ekki áður setið í stjórn Samherja hf. Hún er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, með BA gráðu í félags- og atvinnulífsfræði, meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og doktorsgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School. Ásta Dís hefur á undanförnum árum komið að uppbyggingu náms í sjávarútvegi í Háskóla Íslands og kennt meðal annars námskeiðið Rekstur í sjávarútvegi. Þá er hún annar höfundur bókarinnar Fisheries and aquaculture, the food security of the future sem Elsevier gaf út 2021.

Ásta Dís hefur umfangsmikla stjórnunarreynslu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum, nefndum og ráðum. Í dag er hún stjórnarformaður Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands og MBA náms, Rannsóknarmiðstöðvar Ferðamála og Félags háskólakvenna. Þá er hún formaður Jafnvægisvogarráðs og Vísindasjóðs Háskólans á Akureyri.

Helga Steinunn Guðmundsdóttir / mynd samherji.is

Vöxtur Samherja hf. hefur verið verulegur á þeim næstum fjórum áratugum sem liðnir eru frá því starfsemin var flutt til Akureyrar. Helga Steinunn hefur frá þeim tíma tekið þátt í uppbyggingu félagsins og sat í stjórn Samherja frá árinu 2013. Hún var stjórnarformaður Samherjasjóðsins frá stofnun sjóðsins, sem hefur meðal annars stutt dyggilega við íþróttahreyfinguna á Íslandi.

UMMÆLI

Sambíó