Ásthildur fær 1,7 milljónir króna í heildarlaun

Ásthildur fær 1,7 milljónir króna í heildarlaun

Ásthildur Sturludóttir, nýr bæjarstjóri Akureyrarbæjar, mun fá tæplega 1,7 milljónir króna í heildarlaun fyrir starf sitt sem bæjarstjóri. Ásthildur mun fá fá 1.150.000 kr. í föst dagvinnulaun og auk þess mun hún fá greitt stjórnendaálag sem nemur 45 prósent af mánaðarlaununum.

Stjórnendaálag er þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og hvað annað vinnuframlag sem til fellur utan dagvinnutíma. Greitt er 13,04% orlof á stjórnendaálag

Í ráðningarsamningi bæjarstjóra kemur fram að bæjarstjóri fái ekki greitt sérstaklega fyrir setu á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs eða öðrum fundum fastanefnda Akureyrarbæjar.

Bæjarstjóri fær greitt fyrir akstur í þágu vinnuveitanda á eigin bifreið skv. skráningu á akstursdagbók í Vinnustund í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um akstur í þágu vinnuveitanda.

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á kjörtímabilinu er þrír mánuðir. Samkomulag er um að við starfslok í lok kjörtímabils verði laun greidd á uppsagnarfresti í þrjá mánuði og að auki þriggja mánaða biðlaun.

Samningurinn hefur ekki verið undirritaður en bæjarráð Akureyrar hefur vísað ráðningarsamningnum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Sambíó

UMMÆLI