Auglýsa eftir hugmyndum fyrir AkureyrarvökuMynd: Kristrún Hrafnsdóttir.

Auglýsa eftir hugmyndum fyrir Akureyrarvöku

Akureyrarvaka verður haldin hátíðleg 26. til 28. ágúst næstkomandi og Akureyrarbær hefur auglýst eftir fjölbreyttum hugmyndum að spennandi dagskrá og viðburðum.

„Þetta er tilvalið tækifæri fyrir skapandi einstaklinga og listafólk til að láta ljós sitt skína á Akureyrarvöku sem er eins konar afmælisveisla Akureyrarbæjar,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

Góðum hugmyndum verður veittur stuðningur á bilinu 50.000 til 300.000 kr. Sótt er um rafrænt í gegnum heimasvæði Akureyrarvöku á www.akureyrarvaka.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is.

Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2022.


UMMÆLI