Bæjarstjórn krefst þess að ákvörðun um lokun fangelsis verði dregin til baka

Bæjarstjórn krefst þess að ákvörðun um lokun fangelsis verði dregin til baka

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur mótmælt harðlega þeirri ákvörðun Fangelsismálastofnunar að loka fangelsinu á Akureyri án nokkurs samráðs við bæjaryfirvöld eða aðrar sveitarstjórnir á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Þar segir að yfirlýst stefna stjórnvalda hafi verið að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni og því skjóti það skökku við að fangelsismálayfirvöld taki einhliða og án nokkurs fyrirvara ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri og leggja þar með niður 5 störf í bænum.

Sjá einnig: Ákvörðunin ekki tekin í samráði við bæjarstjórn

„Bæjarstjórn krefst þess að stjórnvöld grípi tafarlaust í taumana og ógildi þessa ákvörðun,“ segir í tilkynningunni. Þar segir enn frekar:

„Bent skal á að samlegðaráhrif í starfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins á Akureyri eru og hafa um áratugaskeið verið afar mikil. Fram til þessa hafa fangaverðir á vegum Fangelsismálastofnunar einnig sinnt föngum sem gista fangageymslur lögreglunnar vegna rannsóknar mála, ölvunar eða af ýmsum öðrum ástæðum. Ef ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri verður ekki afturkölluð, þurfa frá og með næstu mánaðamótum að jafnaði tveir af fimm lögreglumönnum á vakt að sinna fangavörslu flesta daga ársins. Þessi ákvörðun mun því að óbreyttu kalla á stóraukið fjármagn til löggæslu á Norðurlandi eystra en að öðrum kosti skerðist löggæsla á svæðinu svo um munar. Lögreglan á Akureyri hefur einnig með höndum eftirlit og útkallslöggæslu á Grenivík, Svalbarðseyri, í Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og sveitum og þjóðvegum þar í kring. Vandséð er hvernig þrír lögreglumenn geta sinnt allri slíkri löggæslu í umdæminu.

Bæjarstjórn Akureyrar telur með öllu ólíðandi að Fangelsismálastofnun geti í trássi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda í byggðamálum og án samráðs við sveitarstjórnir á svæðinu tekið slíka ákvörðun um að flytja 5 störf af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið og þar með sett löggæslu á svo stóru svæði landsins í algjört uppnám.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó