Bættar merkingar í Sundlaug Akureyrar: „Biðlum til fólks að sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu“

Bættar merkingar í Sundlaug Akureyrar: „Biðlum til fólks að sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu“

Merkingar hafa nú verið settar upp við heitu pottana í Sundlaug Akureyrar sem tiltaka þann fjölda sem má vera í hverjum þeirra í einu. Þetta er gert í kjölfarið á því að lögregla stöðvaði umferð ofan í laugina um síðustu helgi þegar þótti heldur of þétt setið í pottunum.

Sjá einnig: Mögulegt brot á samkomutakmörkunum í Sundlaug Akureyrar

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar en þar segir enn fremur: „Í reglum sem heilbrigðisráðuneytið birti á heimasíðu sinni 13. maí sl. segir að tveggja metra nálægðarmörk gildi ekki á sundlaugarsvæðum en mælst sé til þess að fólk taki mið af þeim eins og kostur er. Þar segir ennfremur að fjöldi gesta hverju sinni megi aldrei vera meiri en sem nemur helmingi af hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Nú hefur það verið metið svo að í Sundlaug Akureyrar sé hæfilegt miðað við aðstæður í búningsklefum og annars staðar á sundlaugarsvæðinu að fjöldi gesta hverju sinni fari ekki yfir 80 manns, að frátöldum börnum og ungmennum sem fædd eru 2005 eða síðar. Það mun gilda þar til frekari tilslakanir hafa verið gerðar á sóttvarnareglum.“

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar býst við fjölda gesta í laugina næstu helgar og biður fólk að virða nálægðarmörk og fjöldatakmarkanir.

„Starfsmenn gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að farið að sé eftir þeim reglum sem gefnar hafa verið út um sundlaugar og baðstaði. Nú hafa merkingar verið bættar enn frekar og við biðlum til fólks að virða þær í hvívetna, sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu, og muna að við erum öll almannavarnir,“ segir Elín.

Á Akureyri.is er vakin athygli á því að um helgar er aðsókn í laugina yfirleitt mest síðdegis eða eftir kl. 16 þegar skíðafólkið kemur úr Hlíðarfjalli. Til að dreifa álaginu og forðast langar biðraðir við afgreiðslu gæti því verið skynsamlegt að fara í sund að morgni dags eða fyrir klukkan 16.


UMMÆLI

Sambíó