Baldur og Benedikt stóðu sig vel í Evrópubikarmótum á snjóbrettum

Baldur og Benedikt stóðu sig vel í Evrópubikarmótum á snjóbrettum

Akureyringarnir Baldur Vilhelmsson og Benedikt Friðbjörnsson tóku þátt í Evrópubikarmótum á snjóbrettum í febrúar. Báðir bættu þeir sig á heimslistanum. Einnig voru þeir báðir að ná í efstu 30 sætin sem gefa Evrópubikarstig.

Baldur og Benedikt hafa þegar átt farsælan feril í brettaíþróttinni þrátt fyrir ungan aldur. Baldur er fæddur árið 2002 og Benedikt árið 2004.

Þeir munu halda áfram að taka þátt í Evrópubikarmótum á næstunni og keppa í Flachauwinkel í Austurríki 4.mars og Götschen í Þýskalandi 5.-6.mars.

Hér að neðan má sjá árangur þeirra í febrúar:

Davos, Sviss, 19.febrúar – Big Air
26.sæti – Baldur Vilhelmsson
37.sæti – Benedikt Friðbjörnsson

Götschen, Þýskaland, 21.febrúar – Slopestyle
14.sæti – Baldur Vilhelmsson
31.sæti – Benedikt Friðbjörnsson

Götschen, Þýskaland, 22.febrúar – Big Air
16.sæti – Benedikt Friðbjörnsson
25.sæti – Baldur Vilhelmsson

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó