Bankastjórinn sem hvarf – fyrri hluti

Bankastjórinn sem hvarf – fyrri hluti

Í þetta skiptið bregða Addi og Binni sér aftur til ársins 1910 þegar dramatískir atburðir eiga sér stað á Akureyri. Vinsæll bankastjóri hverfur um nótt og finnst hvorki tangur né tetur af honum þrátt fyrir mikla leit. Hver urðu afdrif bankastjórans? Fékk andlát eiginkonunnar hann til að grípa til örþrifaráða? Hafði bankastjórinn óhreint mjöl í pokahorninu? Dramatísk saga Friðriks Kristjánssonar þar sem áhugaverðar sögupersónur eins og María Flóventsdóttir, Matthías Jochumsson og Hulda Á Stefánsdóttir blandast inn í frásögnina.

Hlaðvarpsþátturinn Sagnalist með Adda og Binna er tekinn upp á slóðum landnámsmanna í Stúdíó Sagnalist. Arnar og Brynjar eru á heimilislegum nótum í Kristnesi þar sem þeir spjalla um gengnar kynslóðir og gleymda atburði yfir kaffibolla. Sannar og lognar sögur af aðli og almúga með Adda og Binna í hlaðvarpi Sagnalistar.

UMMÆLI