Björgólfur lætur af störfum forstjóra hjá Samherja

Björgólfur lætur af störfum forstjóra hjá Samherja

Björgólfur Jóhannsson hefur látið af störfum forstjóra Samherja hf. Björgólfur hefur gegnt því starfi einn frá nóvember 2019 en frá mars 2020 samhliða Þorsteini Má Baldvinssyni. Þorsteinn Már verður nú á ný eini forstjóri félagsins. Þetta kemur fram á vef Samherja í dag.

„Í kjölfar ásakana á hendur Samherja í nóvember 2019 steig Þorsteinn Már tímabundið til hliðar sem forstjóri. Stjórn Samherja kvaddi hann á ný til starfa í mars 2020 við mjög erfiðar aðstæður í þjóðfélaginu vegna kórónuveirunnar. Með samstilltu átaki tókst starfsfólki Samherja að halda úti bæði veiðum og vinnslu með útsjónarsemi og aðlögum að þeim sérstöku aðstæðum sem uppi voru. Reksturinn er nú nánast í eðlilegu horfi og ný og fullkomin hátæknifiskvinnsla sem opnuð var á Dalvík er farin að ganga snurðulaust. Allt bendir til þess að tekist hafi að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins innanlands, smit eru nær engin og vaxandi þungi í bólusetningum,“ segir á vef Samherja.

„Ég er stoltur af því að stjórn Samherja skuli hafa leitað til mín. Af minni hálfu kom aldrei annað til greina en að verða því kalli. Ég vil þakka öllu starfsfólki Samherja fyrir samstarfið. Þar er valinn maður í hverju rúmi,“ segir Björgólfur Jóhannsson.

„Það blandast engum hugur um það hversu mikilvægt það var fyrir Samherja að fá Björgólf til liðs við okkur. Það veitti svo sannarlega ekki af manni með hans afl og eiginleika. Ég er honum þakklátur fyrir einstakt samstarf og mikla vináttu sem hann hefur sýnt okkur,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Björgólfur hefur verið kjörinn formaður hlítingarnefndar Samherja en sú nefnd hefur yfirumsjón með regluvörslu og stjórnarháttum innan samstæðu Samherja. Mun hann stjórna skráningu og formlegri innleiðingu slíkra reglna ásamt öðrum ráðgjafastörfum fyrir Samherja eftir því sem tilefni verður til.

UMMÆLI

Sambíó