Blakdeild KA og íshokkídeild SA fengu tæpar tvær milljónir úr afrekssjóði

Blakdeild KA og íshokkídeild SA fengu tæpar tvær milljónir úr afrekssjóði

Nýlega afhenti Hildur Betty Kristjánsdóttir, formaður frístundaráðs og formaður Afrekssjóðs Akureyrar, þeim Arnari M. Sigurðssyni, formanni Blakdeildar KA og Ólöfu Björk Siguðardóttur, formanni Íshokkídeildar SA, styrki frá Afrekssjóði. Blakdeild KA fékk kr. 1.200.000 vegna Íslandsmeistaratitila, bikarmeistaratitila og vegna þátttöku í Evrópukeppni 2019. Íshokkídeild SA fékk kr. 600.000 vegna Íslandsmeistaratitla félagsins 2019.

Skautafélag Akureyrar og Knattspyrnufélag Akureyrar áttu lið á líðandi vetri sem náðu frábærum árangri á vellinum. Bæði karla- og kvennaíshokkílið SA unnu alla titla á skautasvellinu og sömu sögu er að segja af karla- og kvennablakliðum KA sem unnu alla titla sem voru í boði á blakvellinum og náðu sögulegri tvöfaldri þrennu.

Afrekssjóður Akureyrar hefur það að markmiði að styrkja við afreksíþróttastarf aðildarfélaga Íþróttabandalags Akureyrar. Hluti af þeim styrkjum er styrkur til félaga sem ná framúrskarandi árangri í meistaraflokki í hópíþróttum, þ.e. Íslandsmeistaratitill, bikarmeistaratitill og/eða þátttaka í Evrópukeppni.

UMMÆLI

Sambíó