Bólusetningar hefjast á ný á slökkvistöðinni á Akureyri

Bólusetningar hefjast á ný á slökkvistöðinni á Akureyri

Bólusetningar hefjast á ný á slökkvistöðinni á Akureyri á morgun, 6. janúar. Bólusett verður frá klukkan 13.00 til 16.00. Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki 5-6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu. Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki hafa getað nýtt sér fyrri boð er velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri.  Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn.

Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu. Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í sína fyrstu bólusetningu í fylgd forráðamanna.

Bólusett verður með Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu. 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19. Þeir sem hafa fengið staðfest Covid 19 smit þurfa að láta líða a.m.k 3-6 mánuði frá veikindum að bólusetningu.

Vegna aukinna smita í samfélaginu minnir HSN á að það er grímuskylda og ber að virða 2 metra regluna á bólusetningarstað.

Sjá  nánar á vef embættis landlæknis:

Sóttvarnalæknir mælir með þriðja skammti fyrir alla 16 ára og eldri þegar 6 mánuðir eru frá grunnbólusetningu gegn COVID-19

Sjá nánar á vef stjórnarráðsins:

COVID-19: Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó