Í dag fimmtudaginn 3. júlí klukkan 17:00 verður 150 ára brúðkaupsafmæli Guðrúnar Runólfsdóttur og Matthíasar Jochumssonar fagnað í Sigurhæðum á Akureyri.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, mælir fyrir skál og Margrét Jónsdóttir leirlistakona verður með listamannsspjall um ný verk hennar í Sigurhæðum.
Öll velkomin og enginn aðgangseyrir sem fyrr á okkar gamla menningarheimili.
Meðfylgjandi myndir er teknar af Daníel Starrasyni og eru af tveimur verkum Margrétar „Matthías Jochumsson“ og „Guðrún Runólfsdóttir“.
UMMÆLI