Brynjar Ingi og Rut íþróttafólk ársins hjá KA

Brynjar Ingi og Rut íþróttafólk ársins hjá KA

Knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason og handboltakonan Rut Arnfjörð Jónsdóttir voru valin íþróttakarl og íþróttakona KA í afmælisþætti sem birtist á miðlum félagsins í gær. Þetta er í annað skipti í sögu félagsins sem íþróttakarl og íþróttakona ársins eru valin.

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA/Þórs var valinn þjálfari ársins og lið KA/Þór valið lið ársins. Þau Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Skarphéðinn Ívar Einarsson hlutu Böggubikarinn í ár.

„Rut Arnfjörð Jónsdóttir var valin íþróttakona ársins en Rut er lykilleikmaður í meistaraliði KA/Þórs sem er handhafi allra titla sem í boði eru á Íslandi í handknattleik kvenna. Hún var valin besti leikmaður Olísdeildar kvenna en Rut kom eins og stormsveipur inn í deildina eftir 12 ára atvinnumannaferil. Rut er ekki bara stórkostlegur leikmaður heldur lyftir hún samherjum sínum einnig upp á hærra plan og er heldur betur vel að verðlaununum komin. Ekki nóg með að vera valin besti leikmaðurinn á lokahófi HSÍ þá fékk hún einnig Sigríðarbikarinn auk þess að vera valin besti sóknarmaðurinn. Rut er lykilleikmaður í íslenska A-landsliðinu,“ segir á vef KA.

„Brynjar Ingi Bjarnason var annað árið í röð valinn íþróttakarl KA en frammistaða hans á árinu vakti heldur betur mikla athygli og var að lokum valinn í A-landslið Íslands þar sem hann hefur tryggt sér sæti í byrjunarliðinu. Alls lék hann 10 landsleiki á árinu og gerði í þeim tvö mörk. Í sumar lék Brynjar ellefu leiki fyrir KA í deild og bikar þar sem hann gerði eitt mark áður en hann var loks seldur til ítalska liðsins Lecce í júlí mánuði. Í lok árs var hann svo keyptur af norska stórliðsinu Vålerenga og því heldur betur spennandi tímar framundan hjá þessum 22 ára kappa,“ segir um Brynjar á vef KA.

Handboltakonan Rakel Sara Elvarsdóttir varð önnur í kjöri íþróttakonu KA og blakkonan Paula del Olmo Gomez varð þriðja í kjörinu. Handboltamaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson varð annar í kjöri íþróttakarls KA og knattspyrnumaðurinn Steinþór Már Auðunsson varð þriðji í kjörinu.

Nánar má lesa um 94 afmæli Knattspyrnufélags Akureyrar með því að smella hér.

UMMÆLI

Sambíó