KIA

Cindy Small sýnir í Deiglunni

Cindy Small

Cindy Small opnar sýningu sína „Voyager / Ferðalangur“ í Deiglunni á laugardag, 23. sept kl. 14 – 17. Einnig verður opið 14 – 17 á sunnudag. Cindy Small er gestalistamaður Gilfélagsins í september og mun sýna afrakstur dvalar sinnar á Akureyri.

„Stuttu eftir að ég kom til Akureyrar heimsótti ég safnið sem sýnir nú gömul íslensk kort. Margt við kortin gripu mig – fallegu landfræðiteikningarnar og notkun lita, stórfenglegu sæskrímslin og síbreytilegt form eyjarinnar eftir nýjar uppgötvanir. Eftir því sem ég verð öruggari á þessu „ættleidda heimili“ breytist skilningur minn á landi og þjóð. Hver dagur er ný upplifun á loftslagi, landslagi, hljóði og lykt. Ég hef búið til ný kort með uppgötvunum mínum, með áherslu á sjálfsmynda, „skrímsla“ sem Ferðalangurinn. Bátarnir, sem eru oft til staðar, tákna ferðina sem hefur prentast í hjarta mitt. Takk, Akureyri. Takk, Ísland.“ segir Cindy um sýninguna.

UMMÆLI

Sambíó