Dagskrá Mannfólkið breytist í slím 2025 opinberuð

Dagskrá Mannfólkið breytist í slím 2025 opinberuð

Áttunda umbreyting mannfólksins í slím nálgast! Menningarhátíðin Mannfólkið breytist í slím fer fram 17. – 19. júlí á Akureyri en hátíðin er kennd við listakollektífið MBS sem hana heldur og hefur gert árlega síðan 2018. MBS hefur verið starfandi á Akureyri frá árinu 2010 og á þeim tíma staðið fyrir reglulegu viðburðahaldi auk tónlistarútgáfu sem nú telur 20 plötur. Helsta markmið MBS er að auðga menningarlífið norðan heiða á forsendum svæðisins með áherslu á jaðarkúltúr og listafólk utan meginstrauma. Upphitunartónleikar eru einnig haldnir í aðdraganda Mannfólkið breytist í slím en þeir fyrstu fóru fram í apríl og verða fleiri auglýstir síðar. 

Mannfólkið breytist í slím er tileinkuð jaðar- og grasrótarmenningu með áherslu á listafólk úr héraði. Hátíðin er fyrst og fremst helguð tónlist en hefð hefur skapast fyrir gjörningalist í bland við tónlistaratriði auk atriða sem dansa mitt á milli listformanna tveggja. 

Dagskrá Mannfólkið breytist í slím 2025 hefur nú verið opinberuð. Hún er sem fyrr afar fjölbreytileg þar sem ægir saman mismunandi stefnum og straumum.

Listafólk sem kemur fram á Mannfólkið breytist í slím 2025:

Alter Eygló

Biggi Maus & Memm

Cohortis

Daveeth

Duft

Egill Logi Jónasson – verndari MBS 2025

Gróa

Gubba hori

Hugarró

In3dee

Kött Grá Pjé

Lu_x2

MC Myasnoi

Melodi

Pitenz

Saint Pete

Show Guilt

Spacement

Ólöf Rún

Úr því að hátíðin fer iðulega fram í hráum iðnaðarrýmum hefur hún skapað sér verðugt orðspor í menningarlandslagi Akureyrar fyrir afar nýstárlega nálgun á viðburðahald. Þannig hefur listakollektífið MBS öðlast mikla reynslu í að umbreyta óhefðbundnum rýmum í frambærilega tónleikastaði á mettíma. Eitt sérkenna Mannfólkið breytist í slím er aukin heldur innsetningar sem finna má á tónleikasvæði þar sem mikið púður er lagt í umgjörð og upplifun hátíðargesta höfð í forgangi. Sú nálgun að taka yfir iðnaðarrými krefst mikillar vinnu við framleiðslu og uppsetningu auk þess sem vinnan er mannaflsfrek en stuðlar hinsvegar að einstökum hughrifum gesta og stemningu sem er sér á báti meðal menningarviðburða á Norðurlandi.

Að jafnaði er miðað við að fjölbreytni atriða Mannfólkið breytist í slím sé sem mest innan þess víða mengis sem jaðarkúltúr er. Einnig skulu tveir þriðju hlutar atriða á viðburðum MBS vera úr héraði, kynjahlutföll þátttakenda skulu vera sem jöfnust og allt listafólk fær greitt fyrir framkomu sína. Aldrei hefur verið krafist aðgangseyris að Mannfólkið breytist í slím en verkefnið er rekið fyrst og fremst á sjálfboðavinnu, styrkjum og frjálsum framlögum gesta.

Sérstaða hátíðarinnar á landsvísu er gríðarleg enda engin önnur menningarhátíð sem haldin er á landsbyggðinni í jafn langri dagskrá þar sem þorri atriða er úr nærumhverfinu. Oftast þegar tónlistarhátíðir eru haldnar á landsbyggðinni er verið að flytja listafólk úr höfuðborginni yfir á strjálbýlli svæði. Markmið MBS með Mannfólkið breytist í slím er að snúa þessu við og bjóða framúrskarandi listafólki annarsstaðar að í bland við fjölbreyttan hóp norðlensks listafólks sem svo mætast í suðupotti grasrótarinnar þar sem allir gestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi auk þess að uppgötva eitthvað nýtt og spennandi.

Ætlunin er að skapa sterka hefð fyrir öflugri menningarhátíð utan meginstrauma á Akureyri sem efla megi listalíf svæðisins til frambúðar og skapa þannig tækifæri fyrir ungt listafólk til að koma fram í bland við reyndara.

Samstarfs- og styrktaraðilar MBS eru: Akureyrarbær, Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, KEA, Tónlistarsjóður, Prentmet/Oddi, Norðurorka, Segull 67, HS Kerfi, Akureyri Backpackers, Aflið & Rás 2. 

Mannfólkið breytist í slím 2025 – viðburður á facebook: 

https://fb.me/e/7Dp3Bvr3Z

MBS á veraldarvefnum:

https://mbsskifur.is

MBS á samfélagsmiðlum:

https://www.instagram.com/mbsskifur

https://www.facebook.com/mbsskifur

Hlekkur á spilunarlista Mannfólkið breytist í slím 2025:

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó