Miðvikudaginn 7. maí mun Sonja Stelly Gústafsdóttir lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild HA verja doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Vörnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Ritgerðin ber heitið: Heilsulæsi og eldri Íslendingar búsettir í heimahúsi: Þátttökubundin sýn á getu einstaklinga og möguleika í umhverfinu.
Rannsóknin, Heilsulæsi (HL) og eldri Íslendingar búsettir í heimahúsi, varpar ljósi á víxlverkandi samspil einstaklings- og umhverfisþátta sem hafa áhrif á getu eldra fólks til að framkvæma HL-tengd verk í sínu umhverfi. Meginmarkmið rannsóknarinnar, sem er þríþætt, var að rannsaka HL, með áherslu á fólk 65 ára og eldra, sem býr í heimahúsi á strjálbýlum svæðum á Norðurlandi út frá þátttökubundinni sýn á iðjuréttlæti.
Hægt er að lesa nánar á vef Háskólans á Akureyri.
UMMÆLI