Prenthaus

Dregið úr viðbúnaði vegna Covid-19 á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Dregið úr viðbúnaði vegna Covid-19 á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir að nú sé ljóst að Covid-19 faraldur sem geisað hefur á Íslandi síðastliðnar vikur sé í rénun og smit í samfélaginu aðeins brot af því sem var.

Hann segir að nú verði dregið úr þeim viðbúnaði sem hefur verið á Sjúkrahúsinu en þó með þeim hætti að sjúkrahúsið verði áfram í stakk búið að taka við og sinna Covid-19 sjúklingum á upptökusvæði sínu og eftir aðstæðum annars staðar. Þetta kemur fram í pistli á vef Sjúkrahússins.

„Smit á Norður- og Austurlandi hafa verið hlutfallslega fá. Þó má gera má ráð fyrir að upp geti komið einstaka smit eða bylgja faraldursins á næstu misserum,“ skrifar Bjarni.

„Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var líkt og á LSH virkjuð viðbragðsáætlun sem gerði ráð fyrir mun stærri faraldri en raun varð á. Með því móti var hægt að sinna þeim verkefnum sem að SAk sneru.  Sett var upp sérstök legudeild og mönnuð heilbrigðisstarfsfólki ásamt því að sérstakar vaktlínur sérfræðinga og unglækna voru stofnaðar. Þá var einnig opnuð sérstök göngudeild fyrir Covid-19  smitaða.“

Bjarni segir að auk þess sem dregið verði úr viðbúnaði verður frá og með 4. maí hafist handa við að koma dag- og göngudeildarstarfsemi og valkvæðum aðgerðum í eðlilegt horf. Það mun gerast í áföngum og í samræmi við gildandi reglur um smitgát.

UMMÆLI