Prenthaus

Efla skákkennslu á Akureyri

Efla skákkennslu á Akureyri

Akureyrarbær, Skákskóli Íslands og Skákfélag Akureyrar undirrituðu í dag nýjan samning um skákkennslu í grunnskólum Akureyrar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Markmið samningsins er að efla iðkun skáklistarinnar í 3.-5. bekk grunnskóla á þeim forsendum að skákin sé stór hluti af menningararfi Íslendinga, styðji við góðan árangur ungmenna í námi og sé jafnframt góður frístundakostur fyrir börn.

Skákskóli Íslands styður við verkefnið með mánaðarlegum fjárhagslegum stuðningi til ársloka 2018 og nema greiðslur til verkefnisins alls 1.170.000 kr. Fjármunina skal nýta til kennslulauna og annars kostnaðar. Auk þess skal Skákskóli Íslands veita ráðgjöf og leiðbeiningar, og útvega kennsluefni eftir því sem þörf krefur. Kennt verður á ákveðnum tímum, vikulega skv. stundatöflu. Allir nemendur 3. og 4. bekkjar fá skákkennslu og nemendur 5. bekkjar þar sem því verður við komið.

Samningurinn gildir á haustmisseri 2018. Samningsaðilar stefna að áframhaldandi skákþjálfun nemenda á vormisseri í ljósi þeirrar reynslu sem fæst á gildistíma, þ.e. frá september 2018 til janúar 2019. Aðilar áforma áframhald kennslu á vormisseri 2019, þ.m.t. að haldin verði meistaramót í hverjum skóla og milli skóla á fyrstu tveimur mánuðum nýs árs. Samninginn undirrituðu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri, Áskell Örn Kárason formaður Skákfélags Akureyrar og Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands.

Ásthildur Sturludóttir segir mikilvægt að ungmenni í bænum kynnist skáklistinni af eigin raun. „Ég held að skákin sé til þess fallin að þroska nemendur, efla rökræna hugsun og það hefur sýnt sig að taflmennska styrkir ungmenni í námi. Það er mikilvægt að Skákskóli Íslands komi að þessu verkefni með svo rausnarlegum hætti og því ber að fagna.“

„Skákkennsla á Akureyri sannaði gildi sitt áður fyrr og mun gera aftur. Skák þjálfar einbeitni og getur stuðlað að bættum námsárangri,“ segir Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands.

Sambíó

UMMÆLI