Einar Brynjólfsson sækist eftir 1. sæti hjá Pírötum

Einar Brynjólfsson sækist eftir 1. sæti hjá Pírötum

Einar Brynjólfsson mun gefa kost á sér í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninga sem fram fara þann 25. september næstkomandi. Einar sækist eftir 1. sæti á lista flokksins í kjördæminu.

Einar sat á þingi fyrir Pírata 2016 til 2017 og segist hafa lært ansi margt sem hann vill byggja á.

„Á þessum stutta tíma kom ég að fjölmörgum þingmálum, t.d. varðandi rannsókn á Fjárfestingaleið Seðlabankans, stjórnarskrá, tekjustofna sveitarfélaga, lífeyrissjóðsmál, skattaundanskot, heilbrigðismál, menntamál, fjölmiðlamál, norrænt samstarf, barnaréttarmál, samgöngumál, umhverfismál og strandveiðar svo fátt eitt sé talið,“ segir Einar.

Í tilkynningu segir Einar að hann vilji þróa íslenskt samfélag í átt til jafnréttis og jöfnuðar á öllum sviðum, til dæmis með því að ráðast gegn spillingu og óráðsíu.

„Þannig að við öll fáum jöfn tækifæri til frægðar og frama án tillits til flokksskírteinis og/eða efnahags. Ég vil berjast fyrir frelsi einstaklingsins til orðs og athafna og auka aðkomu almennings að lýðræðislegri ákvarðanatöku með því að beita mér fyrir nýrri stjórnarskrá, sérstaklega þeim ákvæðum sem snúa að auðlindum, beinu lýðræði og mannréttindum. Ég vil takast á við kvótakerfið, auka strandveiðar, leggjast í stórsókn í atvinnu-, heilbrigðis- og menntamálum á landsbyggðunum á grunni sjálfbærni og í sátt við umhverfið. Auk þess vil ég beita mér fyrir gerbreyttu vinnulagi á Alþingi, sem myndi auka gæði, skilvirkni og síðast en ekki síst, auka traust almennings á þeirri stofnun.“

UMMÆLI