Eining-Iðja styrkir björgunarsveitina Ísólf og Rauða krossinn á Seyðisfirði

Eining-Iðja styrkir björgunarsveitina Ísólf og Rauða krossinn á Seyðisfirði

Stjórn Einingar-Iðju samþykkti samhljóða á fundi í gær að styrkja Björgunarsveitina Ísólf og Rauða krossinn með fjárframlögum og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama. Jafnframt var ákveðið að tvö húsa félagsins á Einarsstöðum yrði notuð án gjalds til Seyðfirðinga sem þyrftu á því að halda á meðan óvissan væri til staðar.

„Stöndum saman og leggjum okkar lóð á vogarskálarnar til að létta þungum byrðum af félögum og vinum fyrir austan. Hugur okkar og hjarta eru hjá ykkur Seyðfirðingar,“ segir í tilkynningu.

Rauði krossinn Seyðisfirði
Kt: 620780-3329
Rnr: 0176-26-30

Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði
Kt: 580484-0349
Rnr: 0176-26-5157

Sambíó

UMMÆLI