Einn aðili fluttur á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð á Akureyri

Einn aðili fluttur á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð á Akureyri

Eldur kviknaði í íbúð í húsi í Strandgötu 45 á Akureyri í dag. Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu klukkan 13:34 í dag um að reyk lægi út um glugga á húsinu. Í ljós kom að eldur hafði kviknað í íbúð á þriðju hæð.

Fljótlega eftir að lögregla og slökkvilið komu á staðinn fékkst staðfest að allir íbúar hússins væru komnir út en talið er að 3 aðilar hafi verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Einn aðili var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar en mögulegt var talið að hann hefði orðið fyrir reykeitrun.

Enn er verið að vinna að niðurlögum eldsins sem hefur náð upp í þak hússins.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó