Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri

Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri

Um klukkan 10:40 í morgun var lögregla kölluð til vegna umferðarslyss sem átti sér stað Strandgötu á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl og eru meiðsli hans talin alvarleg. Hinn slasaði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri lögreglan hefur ekki veitt frekari upplýsingar um líðan eða meiðsli hins slasaða.

„Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og er vinna rannsóknardeildarinnar á vettvangi langt komin. Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um þau að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó