Ekkert verður af á­ætlunar­flugi Condor til Akur­eyrar í sumar

Ekkert verður af á­ætlunar­flugi Condor til Akur­eyrar í sumar

Þýska flugfélagið Condor hefur tilkynnt að hætt hafi verið við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða frá Frankfurt í Þýskalandi sem hefjast átti um miðjan maí og standa fram í október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Þar segir að markaðssetning hafi farið of seint af stað og að mikil vinna hafi verið unnin í tengslum við flugið af hálfu heimamanna á Akureyri og Egilsstöðum, sem og Condor, og að stefnt sé að því að nýta þann undirbúning fyrir árið 2024. Það muni þó skýrist á næstu vikum.

Til stóð að fljúga í hverri viku á tímabilinu á milli Frankfurt- og Akureyrarflugvallar og Frankfurt- og Egilsstaðaflugvallar. Flugfélagið Condor flýgur með ríflega níu milljónir farþega árlega.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla segir það miður að verkefnið með Condor hafi ekki gengið upp í ár en að vonir séu bundnir við að flogið verði á næsta ári.

„Það eru margir þættir sem leiddu til þessarar niðurstöðu, markaðssetningin erlendis hófst ekki nógu snemma til að ná flugi fyrir árið í ár og breyttar markaðsforsendur áttu einnig sinn þátt í að svona fór. Áhugi flugfélaga á millilandaflugi til Norður- og Austurlands fer stöðugt vaxandi, við finnum það mjög sterkt á ferðakaupstefnum og vinnustofum erlendis,” segir Sigrún Björk.

„Það er afar mikilvægt að halda áfram að bjóða upp á aðgengi að landinu í gegnum nýjar gáttir í takti við stefnu stjórnvalda um að efla ferðaþjónustu í öllum landshlutum. Það verður áfram helsta markmið okkar og sem fyrr segir er áhuginn greinilega til staðar. Framboð á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll hefur aldrei verið meira og ferðaskrifstofur sem bjóða ferðir þangað hafa verið að fjölga ferðum, svo dæmi sé tekið.

Viðhöfum heyrt frá Condor að þau hafi fulla trú á áfangastöðum á Íslandi, sér í lagi á Austur- og Norðurlandi. Rannsóknir Ferðamálastofu sýna að ferðamenn sem hingað koma hafa mikinn áhuga á að heimsækja landið aftur og skoða þá nýja landshluta og þýski markaðurinn hefur verið einn af lykilmörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu,” segir Sigrún Björk.

Sambíó

UMMÆLI