Eldur laus í vélarrými í togskipinu Frosta ÞH229Togarinn Frosti kemur frá Grenivík. Mynd: 123.is.

Eldur laus í vélarrými í togskipinu Frosta ÞH229

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst laust eftir klukkan korter yfir þrjú neyðarkall um að eldur væri laus í vélarrúmi togskipsins Frosta. Frosti ÞH229 kemur frá Grenivík. Vísir greinir fyrst frá. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kölluðu út tvær þyrlur sem og varðskipið Tý, sem þá var statt í Ísafjarðardjúpi.
Togskipið var statt um 45 sjómílur vest-norðvestur af Straumnesi þegar neyðarkallið barst.

Stundarfjórðungi eftir að neyðarkallið barst frá Frosta barst stjórnstöðinni tilkynning um að búið væri að einangra eldinn í vélarrúminu en að reykurinn hefði borist um allt skipið, að brú þess undanskilinni. Alls eru tólf í áhöfn Frosta sem allir eru heilir á húfi en hugsanlega er einn skipverjinn með reykeitrun.

TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, hélt beint á staðinn og var komin að Frosta um hálf fimm leytið í dag. TF-SYN, flaug vestur með fimm slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og sem nálgaðist Frosta um sex leytið.

Björgunarskip Slysavarnafélags Landsbjargar, Gunnar Friðriksson, var beðið um að halda rakleiðis á vettvang auk skipa í grenndinni. Áætlað er að varðskipið Týr verði komið að skipinu laust fyrir klukkan sjö. Togarinn Sirrý ÍS36 kom að Frosta laust fyrir fjögur og er gert ráð fyrir því að hann taki Frosta í tog. Allar líkur eru á að TF-GNA flytji einn skipverja frá borði og fari með hann á Ísafjörð til aðhlynningar.

Gott veður er á svæðinu og munu skipin halda áleiðis í land en aðrar bjargir halda sínu striki. Slökkviliðsmennirnir sem koma með TF-SYN munu kanna hvort eldurinn lifi enn í vélarrýminu. Þetta kemur fram í frétt Vísis í dag.


UMMÆLI

Sambíó