Endurmótun Listasafnsins á Akureyri

Steinþór Kári

Arkitektinn Steinþór Kári Kárason mun fjalla um endurmótun Listasafnsins á Akureyri í Þriðjudagsfyrirlestri í Listasafninu á Akureyri, Ketilhýsi, þriðjudaginn 31. október. Fyrirlesturinn er undir yfirskriftinni Endurmótin og hefst klukkan 17:00.

Í fyrirlestrinum mun Steinþór fjalla þær hugmyndir sem þar liggja að baki endurmótun Listasafnsins, markmið og arkitektóníska sýn. Steinþór Kári mun sýna myndir og teikningar af breytingunum ásamt öðrum verkum sem hann hefur unnið.

Steinþór Kári Kárason útskrifaðist sem arkitekt úr École Polytechnique Féderale de Lausanne í Sviss 1998. Eftir að hafa starfað hjá Studio Granda 1998-2003 og hjá Tony Fretton Architects í London 2003-2004 stofnaði hann ásamt Ásmundi Hrafni Sturlusyni Kurtogpi 2004 og hefur starfað þar síðan. Hann hefur kennt arkitektúr við Listaháskóla Íslands frá 2002 og verið prófessor við skólann frá 2010 auk þess að sitja í ýmsum ráðum, nefndum og stjórnum á vegum hins opinbera, félagasamtaka og stofnana.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Næstu fyrirlesarar eru Hugleikur Dagsson og Jessica Tawczynski.

Sambíó

UMMÆLI