Engin staðfest smit bættust við á Norðurlandi eystra í dag

Engin staðfest smit bættust við á Norðurlandi eystra í dag

Engin staðfest smit vegna COVID-19 bættust við á Norðurlandi eystra í dag samkvæmt upplýsingum á covid.is þar sem nýjustu tölur frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra birtust klukkan 13. Staðfest smit eru enn fimm talsins á svæðinu

318 einstaklingar eru nú í sóttkví á Norðurlandi eystra og því hefur einstaklingum í sóttkví á svæðinu fjölgað um 19 frá tölum gærdagsins.

Á landinu öllu eru staðfest smit nú orðin 588 og 6816 einstaklingar eru í sóttkví.

Sjá einnig: Staðfest smit í Mývatnssveit

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.


UMMÆLI