Enginn fastur starfsmaður þegar Iðnaðarsafnið opnar aftur

Enginn fastur starfsmaður þegar Iðnaðarsafnið opnar aftur

Iðnaðarsafnið á Akureyri opnar aftur eftir breytingar fimmtudaginn 4. febrúar. Opið verður frá kl.13.00 til 16.00 fimmtudag til sunnudags en lokað verður mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, nema fyrir hópa.

Vegna slæmrar fjárhagsstöðu safnsins verður enginn fastur starfsmaður á safninu þegar það opnar aftur. Hollvinafélag Iðnaðarsafnsins mun þó standa vaktina á opnunartímum.

Þorsteinn E. Arnórsson mun sinna verkefnum safnstjóra þar til annað kemur í ljós.

„Hollvinafélag Iðnaðarsafnsins samanstendur mestan part af fyrrverandi starfsfólki þeirra fyrirtækja sem mynda grunninn að Iðnaðarsafninu og því má að vissu leyti segja að safngripir sjái um opnunina,“ segir í tilkynningu.

Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir sinnti starfi safnstjóra frá árinu 2019 en henni var sagt upp störfum í janúar á þessu ári vegna fjárskorts.

UMMÆLI