KIA

Evrópski fjárfestingarbankinn lánar Landsneti fyrir nýrri kynslóð byggðalínu

Evrópski fjárfestingarbankinn lánar Landsneti fyrir nýrri kynslóð byggðalínu

Evrópski fjárfestingarbankinn mun lána Landsneti 63,7 milljónir Bandaríkjadala, jafngildi 9 milljarða króna, til uppbyggingar nýrrar kynslóðar byggðalinu. Landsnet mun nota fjármögnunina til að styrkja flutningskerfi raforku til að mæta vaxandi eftirspurn  og stuðla að orkuskiptum.

„Orkunýting á Íslandi byggir í langmestum mæli á endurnýjanlegri orku. Endurnýjun byggðalínunnar leggur grunn að auknu afhendingaröryggi og stuðlar að orkuskiptum á Íslandi. Verkefnið er í samræmi við áherslur Evrópska fjárfestingarbankans í lánamálum hvað varðar stuðning við aukna nýtingu endurnýjanlegrar orku í Evrópu,“ segir í tilkynningu.

Lánið verður nýtt til endurnýjunar á byggðalínunni en nú þegar hafa tvær línur verið teknar í rekstur  í nýrri kynslóð byggðalínunnar, Kröflulína 3 og Hólasandslína 3. Orkuskiptin kalla á bæði gott aðgengi og örugga afhendingu rafmagns. Báðar hafa þær nú þegar sýnt fram á mikilvægi sitt með auknu afhendingaröryggi og aðgengi að rafmagni á Norður-  og Austurlandi. Dæmi um þetta er Akureyri sem hefur nú aðgengi að rafmagni til að mæta orkuskiptunum og aukinni uppbyggingu atvinnulífs.

Þetta er í fyrsta skipti sem Landsnet fær lán hjá Evrópska fjárfestingarbankanum.

„Framundan eru spennandi tímar í orkumálum á Íslandi.  Allar okkar áherslur miða að því að skapa samfélaginu og viðskiptavinum okkar virði með tryggu afhendingaröryggi, hagkvæmum rekstri flutningskerfisins og hámörkun nýtingar á raforku. Við erum mjög ánægð með að Evrópski fjárfestingarbankinn var tilbúinn að fara í þessa vegferð með okkur og veita okkur lán fyrir nýju línunum okkar á Norð – Austurlandi. Þær hafa þegar sýnt fram á mikilvægi sitt þegar kemur að afhendingaröryggi í óveðrum vetrarins og í auknu aðgengi svæðisins að rafmagni. Við höfum væntingar um frekara samstarf þegar kemur að styrkingu flutningskerfisins til þess að stuðla að orkuskiptum en þar erum við hjá Landsneti í lykilhlutverki,“ segir Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsneti.

„Á tímum loftslagsbreytinga eru orkuskipti mikilvæg um allan heim. Við erum afar ánægð með að styðja Landsnet á þeirri vegferð að viðhalda afhendingaröryggi og bæta aðgengi að grænni orku um allt Ísland í samræmi við það hlutverk Evrópska fjárfestingarbankans að vera loftslagsbanki Evrópu. Við höfum áður stutt við framleiðslu endurnýjanlegrar orku í landinu og það að tryggja að græn orka sé fáanleg alls staðar er ekki aðeins gott fyrir heimamenn heldur opnar jafnframt á viðskiptamöguleika,“ segir Thomas Östros, framkvæmdastjóri hjá Evrópska fjárfestingarbankanum.

Lucie Samcová – Hall Allen, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, bætti við: „ESB hefur skuldbundið sig til þess að styðja við græn orkuskipti um heim allan sem og að tryggja samstarfsaðilum okkar aukið aðgengi að öruggum, hagkvæmum og sjálfbærum orkugjöfum. Þetta er því fullkomið dæmi um verkefni sem ESB vill fjárfesta í. Við erum afar stolt af langvarandi samstarfi okkar og Íslands, lands sem hefur árum saman verið í fararbroddi á sviði sjálfbærrar orku. Trú okkar á íslenska græna orkugeirann endurspeglast í tæplega eins milljarðs evra fjármögnun Evrópska fjárfestingarbankans sem veitt hefur verið til íslenskra verkefna tengdum orku frá árinu 2000.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó