Eyrin Restaurant í Hofi hættir

Eyrin Restaurant í Hofi hættir

Eyrin Restaurant í Menningarhúsinu Hofi á Aureyri hefur verið lokað. Hjónin Aðalheiður Hannesdóttir og Guðmundur Ragnar Sverrisson, sem ráku Eyrina frá árinu 2019, sendu í dag frá sér tilkynningu um að ákvörðun hafi verið tekin að loka staðnum þar sem að reksturinn stendur ekki undir sér vegna COVID 19.

„Það er með sorg í hjarta sem við tilkynnum það að Eyrin Restaurant hefur verið lokað. Eftir frábærar viðtökur Akureyringa og annarra gesta frá því að við opnuðum haustið 2019 vorum við spennt fyrir því að bjóða upp á dýrindis veitingar við notalegt andrúmsloft í Menningarhúsinu Hofi til framtíðar. Hinsvegar eftir gríðarlegar áskoranir í kjölfar Covid-19 sem við reyndum að aðlagast eftir fremsta megni með dyggri aðstoð gesta okkar er það orðið ljóst að rekstur Eyrin Restaurant stendur ekki undir sér. 

Eyrin Restaurant var rekinn af okkur hjónunum og voru flutningar norður yfir heiðar með börnum okkar fimm fyrirhugaðir og að allir myndu leggja árar í bát við að skapa framúrskarandi veitingastað á Akureyri. Eftir mikla íhugun höfum við því miður sætt okkur við að vegna áhrifa Covid-19 mun sá draumur ekki verða að veruleika. Við viljum þakka ótrúlega góðar viðtökur og viðskipti við okkur, það hefur verið okkur ómæld ánægja að taka á móti ykkur síðastliðna 14 mánuði,“ segja þau Aðalheiður og Guðmundur í tilkynningu í dag.


UMMÆLI