Eyrún Arna átti frumlegustu hugmyndina á Samsýningu framhaldskólannaEyrún Arna með viðurkenningarskjalið Mynd: VMA.is

Eyrún Arna átti frumlegustu hugmyndina á Samsýningu framhaldskólanna

Eyrún Arna Ingólfsdóttir, nemandi á listnáms- og hönnunarbraut VMA, hlaut viðurkenningu á Samsýningu framhaldsskólanna í Reykjavík fyrir frumlegustu hugmyndina. Verkið sitt nefndi Eyrún Endurvinnslu með tvisti en um er að ræða app sem leiðbeinir um flokkun, endurvinnslu og skapandi hugsun. Hugmyndina vann Eyrún Arna í vöruhönnunaráfanga núna á haustönn hjá kennaranum Helgu Björgu Jónasardóttur. Þetta kemur fram á vef VMA.

Þetta var í fyrsta skipti sem að VMA tók þátt í Samsýningu framhaldsskólanna sem var í ár haldin í þriðja skipti. Menntavísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir sýninginnu í samstarfi við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið. VMA var eini skólinn utan höfuðborgarsvæðisins sem tók þátt.

Helg Björg Jónasardóttir hefur í haust kennt áfanga í vöruhönnun í VMA og var ákveðið að horfa til þess að nemendur í þessum áfanga ynnu verk eða hugmyndir til þess að sýna og kynna á Samsýningu framhaldsskólanna 2022. Helga lagði fyrir nemendur þrjú hugtök til þess að vinna út frá; fatasóun, matarsóun og einmannaleiki. Úr þessum áfanga fóru verk tveggja nemenda á sýninguna, annað var hið frumlega app Eyrúnar Örnu. Einnig voru á sýningunni í Ráðhúsinu sýnd nokkur önnur verk nemenda á listnáms- og hönnunarbraut VMA á þessari önn og vorönn 2022.

Helga Björg og Eyrún Arna voru fulltrúar VMA í Ráðhúsi Reykjavíkur og sem fyrr segir tók Eyrún Arna við viðurkenningu fyrir frumlegustu hugmyndina. Eyrún útskrifast sem stúdent af listnáms- og hönnunarbraut VMA núna í desember og er því á lokasprettinum í námi sínu. Þess má geta að Eyrún átti afar athyglisvert innsetningarverk á sýningu fjögurra brautskráningarnema af listnáms- og hönnunarbraut í Listasafninu á Akureyri, sem lauk í gær, sunnudag.

UMMÆLI