Prenthaus

Fimm hundraðasti rampurinn vígður á AkureyriMynd: Daníel Starrason/Akureyri.is

Fimm hundraðasti rampurinn vígður á Akureyri

Aðstandendur verkefnisins Römpum upp Ísland, vígðu 500. rampinn sem gerður er fyrir þeirra atbeina á Akureyri á laugardaginn.

Vígsla 500. rampsins fór fram við skemmtistaðinn Vamos á Akureyri. Bæjarfulltrúarnir Hulda Elma Eysteinsdóttir og Hlynur Jóhannsson sögðu nokkur orð og þökkuðu Haraldi Þorleifssyni og hans fólki fyrir framtakið. Að því búnu klippti Sigrún María Óskarsdóttir á borða við 500. rampinn og vígði hann þar með formlega.

Hugmyndasmiður og helsti hvatamaður verkefnisins er Haraldur Þorleifsson en markmið átaksins er að búa til 1.500 rampa á landsvísu fyrir vorið 2026.

Í ávarpi sínu vitnaði Hulda Elma Eysteinsdóttir til mannréttindastefnu Akureyrarbæjar þar sem segir meðal annars að óheimilt sé að mismuna fólki vegna fötlunar og að fötluðu fólki skuli tryggðar aðstæður til að taka virkan þátt í samfélaginu. „Og þó það nú væri! Það eru mannréttindi að öllum séu skapaðar sömu aðstæður og gert jafn hátt undir höfði. Hreyfihamlaðir þurfa að komast allra sinna leiða óhindrað og með því að rampa upp Akureyri eru lögð þung lóð á þær vogarskálar,“ sagði Hulda Elma.

Hlynur Jóhannsson þakkaði aðstandendum verkefnisins fyrir að rampa upp Akureyri og sagði það vel við hæfi að 500. rampurinn væri við skemmtistað í bænum. „Því það er afar mikilvægt að fólk á öllum aldri, sem býr við skerta hreyfigetu, geti hitt jafnaldra sína þegar það óskar þess, hvort heldur sem er í leik eða starfi. Maður hefur heyrt of margar dapurlegar sögur af því hvernig fólk í blóma lífsins einangrast félagslega af því að það á þess ekki kost að heimsækja kaffihús eða skemmtistaði þar sem það getur blandað geði við annað fólk. Rampur við skemmtistað endurspeglar því ágætlega hversu mikilvægt það er fyrir fólk í hjólastól að komast allra sinna leiða – geta sinnt erindum hjá opinberum stofnunum, farið í fatabúðir, komist í matvöruverslun, já eða sest inn á kaffihús til að ræða lífið og tilveruna í hópi kunningja og vina. Það er því síður en svo léttvægt að rampa upp skemmtistaði bæjarins og vel til fundið hjá Haraldi og hans fólki að helluleggja fimm hundruðasta rampinn hér á þessu horni við Ráðhústorg á Akureyri,“ sagði Hlynur við vígslu 500. rampsins á Akureyri.

Fleiri myndir frá viðburðinum má finna á Akureyri.is

UMMÆLI

Sambíó