Fjölbreytt hátíðardagskrá á mánudaginn 17. júníMynd: Akureyrarbær/Akureyri.is

Fjölbreytt hátíðardagskrá á mánudaginn 17. júní

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður að sjálfsögðu haldinn hátíðlegur á mánudaginn í bænum. Fjölbreytt hátíðardagskrá er framundan, sem hefst kl. 13 í Lystigarðinum. Þaðan er farið í skrúðgöngu niður í miðbæ þar sem boðið er upp á fjölskylduskemmtun um daginn og svo aftur um kvöldið fram að miðnætti. Dagskrá lýkur með marseringu nýstúdenta Menntaskólans á Akureyri á torginu um miðnætti.

Dagskrá þjóðhátíðardagsins 2019:

Kl. 13-13.50: Hátíðardagskrá í Lystigarðinum

Lúðrasveit Akureyrar. Stjórnandi: Sóley Björk Einarsdóttir.
Fánahylling og hugvekja. Séra Jóhanna Gísladóttir.
Kvennakór Akureyrar. Stjórnandi: Petra Björk Pálsdóttir.
Ljóðalestur: Anna Kristjana Helgadóttir ungskáld.
Hátíðarávarp: Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.
Ólafur Traustason syngur og leikur af fingrum fram.

Kl. 14: Skrúðganga frá Lystigarðinum að Ráðhústorgi

Lögregla, Lúðrasveit Akureyrar og Skátafélagið Klakkur leiða gönguna.

Kl. 14-16: Fjölskyldu- og hátíðardagskrá á Ráðhústorgi

Leikhópurinn Lotta kynnir hátíðardagskrána.
Lýðveldiskaka í tilefni 75 ára afmælis lýðveldisins.
Ávarp fjallkonunnar.
Nýstúdent flytur ávarp
Steps Dancecenter
Tónlistaratriði: DayDream, Embla Sól og Anton Líni.
Skátatívolí frá kl. 14-17.

Kl. 21 til miðnættis: Kvölddagskrá á Ráðhústorgi

Tónlistaratriði: Særún Elma, Embla Björk, Dana Ýr, Tumi og Birkir Blær.
Vandræðaskáldin gera grín

Hvanndalsbræður halda uppi stuðinu frá kl. 23 til miðnættis.

Kl. 23.30: Marsering nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri

UMMÆLI