Fjórar framlengja samning við Þór/KA

Fjórar framlengja samning við Þór/KA

Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir hafa allar framlengt samninga sína við Þór/KA. Þetta kemur fram á vef liðsins.

„Reikna má með að þessar fjórar verði á meðal lykilleikmanna félagsins á komandi tímabili og í framtíðinni. Harpa og Hulda Björg eru á meðal reyndustu leikmanna í ungum leikmannahópi félagsins. Hulda Björg var fyrirliði undanfarið ár og Harpa önnur af varafyrirliðum liðsins. Allir samningarnir gilda út árið 2024,“ segir í tilkynningunni á vef Þór/KA.

Nánar má lesa um leikmennina á vef Þór/KA með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI