Flóra Menningarhús safnar fyrir útgáfu á „Bernskuheimilið mitt“

Flóra Menningarhús safnar fyrir útgáfu á „Bernskuheimilið mitt“

Flóra Menningarhús í Sigurhæðum stendur nú fyrir söfnun á Karolina Fund til að gefa út bókina „Bernskuheimilið mitt“ eftir Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum (1857-1933). Bókin byggir á samnefndri grein sem Ólöf birti í tímaritinu Eimreiðinni árið 1906 og er talin fyrsti sjálfsævisögulegi texti sem íslensk kona skrifaði og birti.

Útgáfa greinarinnar vakti mikla athygli á sínum tíma, enda þótti það byltingarkennt að kona fjallaði opinskátt um einkahagi sína og fjölskyldu. Ólöf var eitt helsta kvenskáld og einn þekktasti rithöfundur landsins um aldamótin 1900.

Markmið útgáfunnar er að varðveita og miðla menningararfi Ólafar og minna á mikilvægt framlag hennar til íslenskra bókmennta og kvenréttindabaráttu. Verkið veitir einstaka innsýn í líf ungrar konu fyrir um 150 árum og er mikilvægt fyrir bókmennta- og kvenréttindasögu Íslands.

Verkefnið hefur þegar hlotið styrk úr Menningar- og minningarsjóði kvenna. Hægt er að styðja útgáfuna frekar með því að kaupa bókina í forsölu á Karolina Fund. Kristín Þóra Kjartansdóttir ritstýrir bókinni og stefnt er að útgáfu þann 21. júní 2025.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó