Framboðslisti Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi samþykktur

Framboðslisti Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi samþykktur

Listi Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í haust var samþykktur á fundi kjördæmaráðs á dögunum. Rafrænt forval VG var haldið dagana 13. – 15. febrúar.

Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi VG mun leiða framboðslistann og í öðru sæti er Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður. Í þriðja sæti er Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi VG. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis kveður nú þingið eftir áratuga langa setu. Hann mun því að sjálfsögðu skipa heiðurssæti listans. 

„Þetta er sterkur listi hjá okkur í VG í Norðausturkjördæmi sem var samþykktur á dögunum. Það var margt fólk viljugt til að taka þátt og eiga sæti á listanum og líka mikil þátttaka í lýðræðislegu forvali um efstu sætin í febrúar. Mér finnst hafa tekist afar vel til við að raða á listann öflugu fólki úr ólíkum áttum. Í öllum sínum fjölbreytileika er þessi hópur samstíga um meginerindi VG, meðal annars um velferðarsamfélag, jöfnuð og náttúruvernd. Ég hlakka mikið til framhaldsinsm,“ segir Óli Halldórsson.

Listinn raðast svo:

1 Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi VG, Húsavík

2 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður, Ólafsfirði 

3 Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi VG, Múlaþingi

4 Kári Gautason, sérfræðingur, Reykjavík

5 Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri

6 Helga Margrét Jóhannesdóttir, nemi, Eyjafjarðarsveit

7 Ingibjörg Þórðardóttir, kennari, Neskaupstað

8 Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson, bóndi og sveitarstjórnarmaður, Öndólfsstöðum

9 Ásrún Ýr Gestsdóttir, nemi, Akureyri

10 Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri

11 Cecil Haraldsson, fv. sóknarprestur, Seyðisfirði

12 Angantýr Ómar Ásgeirsson, nemi, Akureyri

13 Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri MAK, Akureyri

14 Andri Viðar Víglundsson, sjómaður, Ólafsfirði

15 Katarzyna Maria Cieslukowska, starfsmaður á dvalarheimili, Húsavík

16 Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, doktorsnemi, Þórshöfn

17 Kristján Eldjárn, byggingafræðingur, Svarfaðardal

18 Anna Czeczko, grunnskólaleiðbeinandi, Djúpavogi

19 Svavar Pétur Eysteinsson, menningarbóndi, Karlsstöðum

20 Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, Gunnarsstöðum

UMMÆLI

Sambíó