Friður og ró við ysta haf

Friður og ró við ysta haf

Mirjam Blekkenhorst og Sverrir Möller hafa rekið ferðaþjónustu að Ytra Lóni á Langanesi síðan 1998. Þau stunda einnig sauðfjár- og hrossarækt, skógrækt og margvíslegan hlunnindabúskap á jörðinni, en allt styður þetta vel hvað við annað.

Í dag bjóða Mirjam og Sverrir upp á íbúðagistingu, aðstöðu fyrir fundi og námskeið, auk veitingaþjónustu. Einnig bjóða þau upp á bæði göngu- og bílferðir um Langanes og víðar. Viðskiptavinir þeirra eru bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar.

„Okkar sérstaða er fólgin í okkar rólega umhverfi. Við getum boðið ferðamönnum upp á frið og ró, en einnig afar sterka tengingu við náttúruna og dýrin a bænum.“

Hvernig birtast gildi sjálfbærar þróunar í lífi og starfi á Ytra Lóni?

„Við erum mjög meðvituð um að vilja lifa einföldu lífi og nýta vel það sem til fellur á okkar jörð og í umhverfinu. Við viljum deila okkar lífsháttum og upplifunum með fólki sem heimsækir okkar þannig að gestir okkar geti notið þess sem náttúran og kyrrðin gefur okkur.“

Mirjam og Sverrir hafa alla tíð lagt áherslu á samstarf við aðra í sinni heimabyggð, fyrirtæki, skóla og félagasamtök, t.d. hvað varðar þróun áfangastaða á svæðinu og skipulagningu ferða. Þannig bera þau hag sinnar heimabyggðar fyrir brjósti.

Smelltu hér til að lesa meira á vefsíðu MN

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó