Miðvikudaginn 18. júní næstkomandi er gestum og gangandi boðið frítt í bíó í tilefni Hinsegin hátíðarinnar á Norðurlandi eystra. Franska kvikmyndin „Portrait of a Lady on Fire“ (Andlitsmynd af alelda dömu) verður sýnd klukkan 20:00 í Sambíóunum á Akureyri. Þó svo að sýningin sé frí er fólk beðið um að skrá sig hér. Myndin verður sýnd á frönsku með íslenskum texta og er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sýningin er í boði Bíó Paradís og Sambíó á Akureyri. Sýningin er hluti af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra, Hinsegin daga í Hrísey og samtakanna Hinsegin Norðurland. Hátíðin er styrkt af Uppbyggingasjóði SSNE. Frekari upplýsingar um hátíðina og yfirlit yfir alla viðburði er að finna á síðunni hinseginhatid.is
Portrait of a Lady on Fire
Hin unga listakona Marianne er ráðin í verkefni að mála portrett af Héloïse, tilvonandi brúði ríkrar fjölskyldu, sem hefur ítrekað neitað að sitja fyrir því hún neitar að giftast manninum sem til stendur að binda hana við. Marianne dulbýr sig sem vinnukonu til að ávinna sér traust hennar en ekki líður á löngu þar til hún verður ástfangin af fyrirsætunni.
Noémie Merlant, Adèle Haenel, Luàna Bajrami fara með aðalhlutverk. Leikstjóri er Céline Sciamma.
Myndin keppti um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni Cannes 2019 þar sem hún hreppti Queer Palm verðlaunin en um er að ræða fyrstu kvikmyndina sem leikstýrð er af konu sem hlýtur þau verðlaun. Einnig hlaut Celine Sciamma verðlaun fyrir besta handritið á hátíðinni.
UMMÆLI