Prenthaus

Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrafríinu sem hófst í dag.

Á mðvikudaginn 17. febrúar og fimmtudaginn 18. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar á Akureyri farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrarbæjar án endurgjalds. 

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum. 

Í tilkynningu um málið á vef bæjarins segir að nauðsynlegt sé þó að að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1. Þá er bent á mikilvægi þess að kynna sér aðgengi að Hlíðarfjalli m.t.t. sóttvarnarreglna áður en fjallið er heimsótt. Þær er að finna inn á heimasíðu Hlíðarfjalls.

Sambíó

UMMÆLI